Á Ísland, sem eitt ríkasta land í heimi, erindi inn í Evrópusambandið þar sem mörg ríki glíma við fátækt og efnahagserfiðleika? Jón Baldvin Hannibalsson, fyrrverandi ráðherra hefur skoðun á því.
Hann er væntanlegur í Spursmál í dag til þess að ræða þetta áleitna mál en hann verður einnig til svars um það hvernig alþjóðamálin í víðara samhengi blasa við honum. Hann var um nokkurra ára skeið sendiherra Íslands gagnvart Bandaríkjunum í Washington D.C. og er því öllum hnútum kunnugur þegar kemur að stöðu og stefnu Bandaríkjanna, jafnt heima fyrir og um veröld víða.
Í fréttum vikunnar verður rætt við þá Sævar Helga Bragason, jarðfræðingur og umsjónarmaður Stjörnuvefsins með meiru, og Herbert Guðmundsson tónlistarmann. Rætt verður við þá um geimskot, fráfall Björgvins Halldórssonar og margt fleira.
Í þáttinn mætir einnig Andrés Magnússon, fulltrúi ritstjóra Morgunblaðsins en hann mun í dag sitja fyrir hönd blaðsins blaðamannafund ríkisstjórnarinnar sem bæði kynnir nýja atvinnustefnu fyrir Ísland og tímabundnar aðgerðir til að mæta efnahagslegum þrengingum sem gert hafa vart við sig á síðustu mánuðum.
Hann mun fara yfir helstu atriði í tillögum ríkisstjórnarinnar.
Information
- Show
- FrequencyUpdated weekly
- Published10 April 2026 at 15:50 UTC
- Length1hr 34min
- RatingClean
